The life of Ingz Pingz
15.08.2006 20:35:02 / inga

*NÝTT*

Já hef ákveðið að prufa að blogga á nýju bloggi :)

Vonandi að ykkur lítist vel á og verið dugleg að fylgjast með og kommenta

Kveð héðan með smá söknuði8|

www.ingz.bloggar.is

Tene á morgun;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 15:18:33 / inga

SMURNING???

Búin að vera að skoða bloggar.is síðurnar, bjó mér til eina fyrir alllöngu síðan, fordun.bloggar.is og ætlaði að vera voða virk en hef ekki gert neitt þar

Svo bjó ég mér til um daginn

www.ingz.bloggar.is 

og er mikið að spá hvort ég eigi að skipta allveg, það er víst miklu auðveldara að setja inn myndir og svona þar svo þið verðið að segja mér hvað ykkur finnst;)

Annars var ógó gaman í eyjum og tenerife er aðeins eftir viku;)

Kem með nánara blogg þegar þið hafið sagt mér á hvorum staðnum ég á að vera á´;)

Ingz


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 08:12:56 / inga

Jæja!!

Þá er maður búin að vera í sumarfríi í viku og það er ÆÐI GÆÐI get ég sagt ykkur!

Var þó ekki alveg að fíla þess rigningu sem er búin að vera en sýnist ætla að rætast úr deginum í dag jafnvel;)

Ekki samt ánægð með það að vera í sumarfríi og að vera vöknuð nú þegar hvað er það
????

Held að þetta sé jafnvel merki um öldrun:$ Nei maður spyr sig því ég fór nú ekki að sofa klukkan tíu eða neitt í gær, var bara útstáelsi á minni, kíktum niðrí bæ á kaffihús og röltum svo aðeins um og það var æði, gjeggjað veður (held það hafi verið um   15°C um 12 leitið) og svo var gjeggjuð útlandalykt og svona ógó gaman, ekki nema hún hafi kannski bara komið með öllum útlendingunum 8| hehe

En eitt sem er ógó pirrandi við að búa svona langt í burtu frá miðbænum er það að þurfa alltaf að vera á bíl:(

Við nebbla ákváðum að fá okkur bjór í gær, ég og Ásta en ég lét Söndru skutla mér niður eftir svo var bara bobbi að redda sér heim, maður er ekki allveg að tíma að borga í TAXA svo ég auglýsi hér með eftir einkabílstjóra svo ég geti farið stöku sinnum á góðvirðiskvöldum og rölt um bæinn og svona;)

Já en annars allt gott að frétta, vika í eyjar og 2 og hálf í TENERIFE men hvað ég hlakka til að liggja í Sonnenbaten alla daga;)

En fleira er það ekki í fréttum að sinni Broddi Broddason;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 11:59:57 / inga

Skondin frétt;)

Okei þetta er bara snilld, verð bara að láta smá sögu fylgja með þessu samt:)

http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1214164

Þannig er mál með vexti að í vetur hef ég nottla alltaf verið upp á bifröst og svo þegar ég kem í bæinn um helgar og svona hefur Beggi MARGoft sagt við mig þegar við erum að fara að lúlla, ohh ég sef alltaf miklu betur þegar þú ert heima og ég er allveg sammála þannig, eða finnst allavegna voða gott að hafa hann til að knúsa en get samt allveg viðurkennt að ég er ALLTAF að vakna á nóttunni en það gerist reyndar líka allveg uppfrá sko....!!!

Fannst þetta bara ógó fyndið þegar ég las þetta því honum finnst svo agalega notó og gott þegar ég er heima og sefur eins og ungabarn :)

hehe og nú höfum við það svart á hvítu að við erum einfaldlega XXXXXXX;) og gefum þeim það sem þeir hafa hehehe nei kannski full gróft????

Ingsína;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 09:03:35 / inga

Vúhú;D

Sumarfrí eftir 2 klukkutíma :D

vúhú og þá verður bara tekið til skúrað og skrúbbað og svo barasta brunað í byen;D

Veiiiii og kem ekki hingað fyrr en eftir 6 vikur:D

Annars er mér bara búið að ganga ágætlega í sumar meðaleinkuninn úr fögunum 7 er um 8;D Sem verður að teljast fínt;D

Jæja back tú hlust tú mæ last fyrirlestur this sömmer;D

Ingzína


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 19:32:15 / inga

SUMARFRÍ!!!!

Já BARA TVEIR DAGAR EFTIR vúhú;)

Spurning hvað maður gerir um helgina en það er asskolli margt á boðstólnum;

  • Útilega vestur
  • Fljótshlíðin
  • Reykjavík, Lögfræðipartý og Viðeyjarpartý
  • Höfuðstaður Norðursins

Hvað verður fyrir valinu er ekki enn ljóst, endilega hjálpið mér að ákveða;)

Þó ég gæti trúað að veðurfar ráði nú mestu um þetta málefni, langar líka að skella mér í Atlavíkina en það eru nú komin nokkur árin síðan ég fór þangað síðast;)

Annars styttist líka í Tenerife, bara mánuður, tæpur vúhú;)

Allt að gerast og sumarskapið LOKSINS að koma yfir mann þegar maður sér fram á lausn úr 11 mánaða samfleittri fangelsisvist í Norðurárdalnum:haha:

Bæjó spæjó

Ingzí sem er að allveg að komast í siðmenninguna aftur í smá tíma;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 11:38:48 / inga

Hólmurinn!

Jamms fórum í skólafélagsútilegu um helgina, á laugardaginn nánar tiltekið, mættu nú samt ansi fáir og hvað þá frá skólafélaginu sjálfu, en í stað þess að bruna til baka ákváðum við bara að gera gott úr þessu enda eðal hópur þar á ferð;)

Þar sem ég var ekkert ALLTOF virk á myndavélinni þá eftirlét ég mér að stela myndum eins og margfrægt er orðið hjá mér;)

Stal þessum fínu myndum af Hildi;)

http://public.fotki.com/HildurGeorgsdottir/sumar_2006/tilega_sklaflagsins/

Verð svo að fara að taka mig á og taka fleiri myndir og reyna að drullast til að henda þeim inn á netið kannski fín leið til að eyða sumarfríinu á meðan allir eru að vinna og eitthvað leiðó;)

Og hver man eftir þessu lagi??

Sá hinn sami fær verðlaun hihihihihi;)

http://www.fbesp.org/jordy/01%20Dur%20Dur%20D%27etre%20Bebe.mp3

Helgiin enn eilega óráðinn en er samt að fara í ammli á föstudag víví;)

Ingsíníbob;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 19:24:10 / inga

OMG!!!

Verðið að kíkja á þetta, þetta er ekkert smá sorglegt en samt ógó flott;)

Dýrka þetta lag veit ekki hvað það er:)

http://69.is/openlink.php?id=11326


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 19:50:53 / inga

Plehhhh

Jú góðan og blessaðan daginn

Maður gerðist svo asskoti menningarlegur að taka Fornaldarheimspeki í staðin fyrir einhvern lögfræðikúrs sem mér leist ekkert alltof vel, enda fínt að liðka aðeins um hugann og leyfa honum að hugsa sín eigin rök núna en ekki bara vegna þess að í 1. mgr. 6. gr. laga nr. ble:)

Undarleg tilbreyting engu að síður en gaman samt sem áður erum búnar að skila 2 verkefnum og er bara búið að ganga svona asskolli vel verð ég nú að segja sérstaklega þetta seinna en þar vorum við sko komnar í heimspekilegan gír;)

Annars bara lítið að frétta get ekki beðið eftir 2 og hálfa viku en þá er maður LOKSINS komin í sumarfrí, verst hvað það er eitthvað stutt eftir af sumrinu þá en maður verður bara að njóta þess enda nóg að gera;)

  • Fólk að koma heim frá útlöndum
  • Þjóðhátíð
  • Tenerífe
  • og svo bara sofa út og slappa af;)
Þetta  verður bara huggó en ég og Arna erum búnar að planleggja sundlaugarnar í "góða veðrinu" sem ætlar að vera hérna á klakanum þegar hún kemur heim, veit nú samt ekki hvort maður meiki allveg með henni í sund en manneskjan er nottla bara orðin eins og spánverji á litinn, samt doldið skondinn spánverji því maður sér þá nú yfirleitt ekki vera glókolla;)

En jæja best að halda áfram með heimspekina;)

Já fór í bío í gær á the brake up og ég verð að segja að ég bjóst við meiru miðað við trailerana og umfjöllun ekki það að þetta hafi ekki verið góð mynd en hún var samt frekar kannski góð vídjóspólumynd frekar en hitt en hey ég fékk boðsmiða og fullt af dóti með svo þetta var fínt, felldi nokkur tár og svona ;)
Aftur á móti sá ég Click og hún er svo alls ekki þessi týpíska Adam Sandler mynd sem ég bjóst við og mæli sko með að sjá hana og shjett ég var liggur við farin að háskæla yfir henni, hálfskammaðist mín þegar manneskjan við hliðina á mér var farin að líta á mig.
Þetta er svakalegt að vera svona sko, getur allveg verið VEL pirrandi stundum sko:lol:
en það er víst lítið við því að gera svo sem.....

Jæja blessuð sértu sveitin mín....!!!
Já fórum á Færeyska síðustu helgi, var fínt;)

Ingsínsa



» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 20:28:58 / inga

Í sól og sumaryl;)

Já blessuð bongóblíðan lét loksins sjá sig hér á Röstinni í dag 8)

Sátum úti að lesa og fengum þennan fína lit sem er bara gaman;)

Á að vera að læra fyrir Skaðabótaréttarpróf sem ég er að fara í á morgun, 50% raunhæft verkefni, sem mér finnst í sjálfu sér hálf asnalegt þar sem lögfræðingar fá nú aðeins meira en 3 tíma til að undirbúa sig og sækja mál sem þeir fá inná borð til sín sko....8|:$

Jáhátz læri-nennurnar eru ekki í góðu formi í dag svo ef að e-h á góðar nennur auka þá má hann endilega senda mér þér ekki seinna en strax svo ég geti lært sko ekki sneddí sko....Maður er nú eilega allveg komin með *UPPÍKOK* af þessum skóla enda líka ekki heilbrigt að vera í skóla stanslaust nánast frá sept-endaðan júlí!!!!!
Fyrir utan það að þessi skóla er í útrásaregótrippi í augnablikinu!!!!!

En eins og ég segi nú eins og svo oft áður fokk it ég er að fara í bæinn á morgun og vonandi í útilegu í góða veðrinu!!!
(Held samt að ég hafi ekkert of oft sagt þetta áður en anywho hehe)

Jamms samt allveg merkilegt hvað manni tekst alltaf að finna sér e-h ALLT ANNAÐ að gera þegar maður á að vera að læra!!!!

Býð vel í þessar auka nennur sko :$

Jæja bara 400 bls eftir ræt!!!!

Skinga!!!

PS: Verst hvað þetta góða veður fer illa í átakið manns :S Fékk mér 2svar ís í dag:( úbbosí og svo var maður svo asskoti dasaður eftir að sitja úti í lestri + lélegt loft í ræktinni að það var ekki tekið nógu vel á því þar:(



» 5 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 17:49:53 / inga

Eitthvað sem allir ættu að temja sér!!!

Lesiði þetta:

 Vinur í grennd
Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar

Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.

En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.

"Ég hringi á morgun", ég hugsaði þá,
"svo hug minn fái hann skilið",
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli okkar bilið.

Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.

Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.

Já þar sem ég er mikill óvinur þess að skilja við manneskjur ósátt og finnst að enginn eigi að sofna ósáttur við einhverja manneskju þá finnst mér þetta ljóð mjög lýsandi!!!

Munið líka að segja þeim sem ykkur þykir vænt um það nógu oft, því aldrei er góð vísa of oft kveðin og mennirnir eru ekki nógu duglegir við að láta þá sem þykir vænt um vita það!!!!

Maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér svo lifið hvern dag eins og hann sé sá síðasti og takið nýjum degi með gleði og þakklæti og ekki fresta því sem hægt er að gera í dag til morguns!!

Þykir vænt um svo ótrúlega marga og á svo marga æðislega að og vill þakka þeim fyrir að vera til staðar fyrir mig!!!!

Lov jú

Ingsína!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 12:03:01 / inga

Hihhihihihihi

http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1156

Hihihihihih fariði inn á þetta þetta er skemmtilegasta vekjaraklukka sem ég hef á ævi minni hitt:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 17:38:52 / inga

Myndir meiri myndir

Jamms hérna koma fleiri myndir og once and again eru þær stolnar:)
En það er betra en engar því ég tók svo fáar þetta kvöld:)

Afmælið hennar Unu Daggar:)

Ég lít samt út eins og ég sé að fara að drepa e-h á sumum myndunum svo stjörf eru augun og sumir eru nú ansi nánir þarna líka hehe en það er nú barasta fyndið;)
Kannski betra að setja linkinn inn líka:lol:

http://www.blog.central.is/arndisey?page=viewPage&id=857360


Sælir
Crazy eyes


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 15:29:19 / inga

Álitið á lögfræðingum

Jónas verkfræðingur deyr og fer auðvitað upp til himna eins og allir verkfræðingar. Þegar þangað kemur leitar Pétur í nafnalistanum og segir svo:

,,Því miður Jónas minn, þú ert ekki ekki á listanum. Þú verður að fara niður".

,,En en, ég er verkfræðingur...", segir Jónas.

,,Já sorrí, en þú ert ekki á listanum !"

Þannig að Jónas er sendur niður til helvítis.:klikk:

Mánuði síðar er Guð að fara yfir nafnalistana og sér að þau mistök hafa átt sér stað að Jónas verkfræðingur hafi óvart verið sendur til helvítis. Hann bjallar í Satan og biður hann um að skila nú Jónasi.

:evil:Satan segir strax: ,,Ekki séns, þú færð Jónas sko ekki aftur, þín mistök".

Guð er ekki sáttur og segir: ,,Láttu ekki svona, Jónas er

verkfræðingur, hann á heima á himnum með hinum og þú veist það".

Þá verður Satan mikið niðri fyrir:

,,Sko, áður en Jónas kom var ógeðslega heitt hérna, það var hraunstraumur hér um allt og brennisteinsfnykur og viðbjóður. Jónas breytti þessu öllu. Núna erum við komin með loftræstingu, brýr, vegakerfi, flóðvarnagarða og ég veit ekki hvað og hvað, allt hannað af honum.Þetta er orðið helvíti næs hérna hjá okkur. Það er ekki séns að þú fáir hann".

Við þetta rennur Guði í skap: ,,Sko Satan, þú lætur mig fá hann aftur, eða ég fer í mál við þig !"

,,Já er það, og hvar þykist þú ætla að fá lögfræðinga..."

hihihihihi já það er aldeilis:klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 15:42:36 / inga

Íhaaaaa!!!

Komiði heil og sæl til sjávar og sveita!!!

Maður er komin í sveitina aftur eftir fínt frí en ég fór í bæinn á miðvikudaginn síðasta, reyndar þegar ég kom hingað í morgun kom í ljós að það voru engir verkefnatímar í dag svo ég hefði nú ekkert þurft að drífa mig en maður notar þá kannski bara tímann í að lesa ( hósthóst) og svo skella sér í body pump á eftir;)

En þar sem ég er nú ekki sérlega dugleg að setja inn myndir8|

Þá stal ég hérna linknum á myndirnar hennar Sander söster og þið getið bara látið ykkur það vel linda þar til ég og myndasíðan erum orðnar vinkonur aftur en hún neitar mér oftar en ekki að hlaða inn myndunum, þarf að fá mér manneskju í vinnu við þetta því það eru orðnar ansi margar myndirnar sem ég á á lager;)

Endilega ef að þið vitið um GÓÐA og þægilega síðu látið mig vita!!!

En hérna er linkurinn:

http://community.webshots.com/user/sandrasparty

Þetta er af djamminu undanfarið og missið ykkur nú í myndaskoðun og megið endilega kommenta líka þar sem mér þykir sú athöfn vera farin að dala undanfarið!!!

Adioz Maltezene!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7